Þrjú glæsileg mörk í Sheffield (myndskeið)

Callum Hodson-Odoi gerði tvö falleg mörk er Nottingham Forest vann 3:1-útisigur á Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Ryan Yates komst einnig á blað hjá Forest með öðru fallegu marki. Ben Brereton Díaz gerði mark Sheffield United úr víti.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert