Nýr viðburður í Valorant hófst í dag sem geimlegt víxlverkefni og felur í sér nýja leið fyrir leikmenn til þess að fagna komu Perlunnar.
Leikmenn fá sérstakan bardaga- eða víxlverkefnapassa frítt og tengist fyrsta hluta fimmta þáttar Valorant og gildir passinn fram að 13. júlí.
Passinn felur í sér sjö reynsluþrep, tvo titla, þrjú leikmannaspil og tvö Radianite reynsluþrep.
Titlarnir sem fást eru Dimensional og Double Agent en leikmannaspilin þrjú eru Omen, Killjoy & Raze og Valorant Legion. Hér að neðan má sjá mynd af leikmannaspilunum.
„Víxlverkefnapassinn var hannaður sem leið fyrir leikmenn til þess að fagna nýja kortinu, Perlunni, og vekja athygli á dýpri frásögnum af alheiminum okkar. Við vildum búa til leið fyrir leikmenn til þess að minnast þess þegar Valorant fór inn í speglaheiminn í fyrsta skiptið,“ segir í tilkynningu frá Riot Games.
„Til þess að sameina þessa heima, fengum við reynslubolta í geiranum, eins og Jim Lee, og fjölbreyttan hóp listamanna til þess að hanna sláandi leikmannaspil í teiknimyndasöguþema, sem gefur hverju spili sinn eigin persónuleika.“
Teiknimyndasöguverslunin í stuttmyndinni „Shattered“,sem Riot Games birti í gær má sjá forsíðu nokkurra teiknimyndablaða og spila þau ásamt versluninni hlutverk í sögu Valorant.
Hægt er að horfa á Shattered hér að ofan en vert er að nefna að verslunina er einnig að finna í Perlunni.
Hér að ofan má sjá mynd af forsíðu teiknimyndablaðanna War Dawgs og Alpha Threat. Belen Ortega hannaði Alpha Threat og Ken Lashley hannaði War Dawgs.
„Þegar við áttuðum okkur á því að forsíður teiknimyndablaðanna gætu líka hluti af félagslegri herferð, eins og bardagapassa-efni, eða jafnvel á PERLUNNI sjálfri - vissum við að þarna var eitthvað stærra tækifæri,“ segir Mike Berry, myndbandsstjóri hjá Riot Games.
Að lokum segir frásagnarhöfundurinn Shannon Eric Denton að „við séum á skemmtilegri gullöld þar sem hægt er að spila uppáhalds persónurnar sínur í tölvuleikjum og séð þær á forsíðum teiknimyndablaða og fleira“.
„Þetta er frábær tími til þess að vera aðdáandi.“