Kólumbíumaður til Barcelona

Yerri Mina.
Yerri Mina. Ljósmynd/Twitter

Spænska knattspyrnuliðið Barcelona greindi frá því í dag að það hafi gengið frá kaupum á kólumbíska landsliðsmanninum Yerri Mina frá brasilíska liðinu Palmeiras.

Mina er 23 ára gamall varnarmaður og er samningur hans við Katalóníuliðið til fimm og hálfs árs. Barcelona greiðir 11,8 milljónir evra fyrir leikmanninn en sú upphæð jafngildir um 1,5 milljörðum íslenskra króna.

Mina hefur spilað 9 leiki með kólumbíska landsliðinu og hefur í þeim skorað 3 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert