Maccabi Tel Aviv er komið á toppinn í efstu deild Ísraels í fótbolta eftir 3:1-sigur á Hapoel Ashkelon í 19. umferðinni í kvöld. Viðar Örn Kjartansson lék allan leikinn fyrir Maccabi en var ekki á meðal markaskorara liðsins.
Maccabi og Hapoel Be'er Sheva eru jöfn á stigum og bæði með 16 mörk í plús í markatölu, en Maccabi hefur skorað fleiri mörk og er því á toppnum. Viðar og félagar hafa unnið átta síðustu leiki sína í öllum keppnum og ekki tapað síðan 23. nóvember.