Hólmar Örn skoraði í sigri

Hólmar Örn í baráttunni.
Hólmar Örn í baráttunni. Ljósmynd/Levski Sofia

Hólmar Örn Eyjólfsson og liðsfélagar hans í Levski Sofia fengu heimsókn frá Vereya í sex liða úrslitakeppninni um búlgarska meistaratitilinn í fótbolta í dag.

Levski hafði betur, 2:0, og skoraði Hólmar fyrra mark liðsins á 41. mínútu og var það fyrsta deildarmarkið hans fyrir Levski en hann kom til félagsins í haust og hefur átt fast sæti í vörninni síðan. 

Levski Sofa er í 3. sæti úrslitakeppninnar með 54 stig, 24 stigum frá toppliði Ludogorets. Hólmar og félagar standa svo vel að vígi í undanúrslitum búlgörsku bikarkeppninnar eftir 2:0-sigur á grönnum sínum í CSKA Sofia í fyrri leiknum og geta þeir tryggt sér sæti í úrslitaleiknum er seinni leikurinn fer fram á miðvikudaginn kemur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert