Knattspyrnumaðurinn Kolbeinn Sigþórsson er ekki í leikmannahópi hjá franska félagi sínu, Nantes, annað sinn í röð er liðið leikur sinn annan leik í efstu deild á tímabilinu, nú gegn Rúnari Alex Rúnarssyni og félögum í Dijon.
Kolbeinn var aðeins byrjaður að koma við sögu hjá liðinu undir lok síðustu leiktíðar en hann hafði þá lítið sem ekkert spilað síðan 2016 vegna meiðsla sem voru nálægt því að binda enda á ferilinn. Í einhverjum frönskum miðlum er sagt frá því að Kolbeinn sé einn þeirra leikmanna sem megi finna sér annað félag áður en félagsskiptaglugganum verður lokað í lok mánaðar.
Rúnar Alex var í marki Dijon sem vann 2:1-útisigur á Montpellier í fyrstu umferð frönsku efstu deildarinnar og verður væntanlega í eldlínunni með liði sínu í kvöld er Nantes kemur í heimsókn.