Messi og fleiri kanónur á bekknum

Lionel Messi hefur leik á bekknum hjá Barcelona í kvöld.
Lionel Messi hefur leik á bekknum hjá Barcelona í kvöld. AFP

Ernesto Valverde þjálfari Barcelona gerir fjölmargar breytingar á byrjunarliði sínu sem tekur á móti Tottenham í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld.

Barcelona er þegar búið að tryggja sér sigur í riðlinum en Tottenham er í baráttu við Inter um að ná öðru sætinu og komast þar með í 16-liða úrslitin.

Lionel Messi, Gerard Pique, Jordi Alba, Sergio Busquets og Arturo Vidal hefja allir leik á bekknum og Luis Suárez spilar ekki vegna meiðsla.

Lið Barcelona: Cillessen; Semedo, Vermaelen, Lenglet, Miranda; Arthur, Rakitic, Alena; Dembele, Munir, Coutinho.

Lið Tottenham: Lloris, Walker-Peters, Alderweireld, Vertonghen, Rose, Winks, Sissoko, Eriksen, Dele, Son, Kane.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert