Liverpool ætti að bera virðingu fyrir okkur

Iker Casillas.
Iker Casillas. AFP

Liverpool hefur ekki efni á að vanmeta Porto er liðin mætast í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í fótbolta að sögn Iker Casillas, markmanns Porto.

Manchester United dróst gegn Barcelona og Manchester City og Tottenham drógust saman. Á meðan drógust Liverpool og Porto saman, en Liverpool vann einvígi liðanna 5:0 í 16-liða úrslitunum á síðustu leiktíð.

Liverpool hefur ekki tapað fyrir Porto í sex leikjum liðanna í Evrópukeppnum. Casillas, sem vann keppnina þrisvar með Real Madríd, segir að Porto sé nógu gott til að slá enska liðið úr leik. 

„Við höfum trú á að við getum farið á næsta stig,“ sagði Casillas við heimasíðu Porto eftir að hann skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við félagið í dag. „Við erum andlega sterkir og það sem gerðist á síðustu leiktið skiptir engu,“ bætti Casillas við. 

„Við berum mikla virðingu fyrir Liverpool, en Liverpool ætti líka að bera virðingu fyrir okkur. Við erum með mjög góða leikmenn sem hlakka til að mæta til leiks í Meistaradeildinni,“ sagði Casillas. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert