Real að missa af öðru sætinu

David Soria átti mjög góðan leik í marki Getafe.
David Soria átti mjög góðan leik í marki Getafe. AFP

Real Madríd varð að sætta sig við markalaust jafntefli við Getafe á útivelli í efstu deild Spánar í fótbolta í kvöld. 

Real var töluvert sterkari aðilinn og var 68 prósent með boltann. Liðið skapaði sér fín færi en það gekk illa að koma boltanum fram hjá David Soria, markmanni Getafe, sem var besti maður vallarins. 

Real Madríd er í þriðja sæti deildarinnar, sex stigum á eftir Atlético Madríd í öðru sæti, þegar aðeins fjórar umferðir eru eftir af deildinni. Barcelona er með níu stiga forskot á toppnum og nánast orðið meistari. 

Með stiginu í kvöld fór Getafe upp í fjórða sæti, þar sem liðið er með 55 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert