Albert Guðmundsson landsliðsmaður í knattspyrnu var á skotskónum í dag þegar lið hans AZ Alkmaar frá Hollandi mætti Anderlecht frá Belgíu í æfingaleik.
AZ sigraði 2:0 og Albert skoraði síðara mark hollenska liðsins.
Jökull Andrésson, 18 ára markvörður enska liðsins Reading, spilaði seinni hálfleikinn með aðalliði félagsins í dag þegar það mætti spænska stórliðinu Sevilla á Spáni. Jökull vakti athygli fyrir góða frammistöðu en Reading tapaði leiknum naumlega 2:1.
✌️ Doelpuntenmakers.
— AZ (@AZAlkmaar) July 13, 2019
➡️ Meer over de oefenzege van AZ op Anderlecht (2-0): https://t.co/ATaarqZPiy#AZ #MB9 #AG28 #azand pic.twitter.com/DOKVWX7Yip
71’ Andresson with a third great save, pushing it over the bar for a corner #REAvSEV
— Reading FC (@ReadingFC) July 13, 2019
1-1