PSG vann sjöunda árið í röð

Di María fagnar sigurmarkinu.
Di María fagnar sigurmarkinu. AFP

PSG er meistari meistaranna í fótbolta í Frakklandi, sjöunda árið í röð. PSG hafði betur gegn Rennes í leik Frakklandsmeistaranna og bikarmeistaranna og hafði betur, 2:1. Leikið var í Kína. 

Bikarmeistarar Rennes byrjuðu betur og Adrien Hunou skoraði fyrsta mark á 13. mínútu. Það reyndist eina mark fyrri hálfleiks. 

Kylian Mbappé jafnaði metin á 57. mínútu og korteri fyrir leikslok tryggði Ángel Di maría 2:1-sigur PSG. Keppni í frönsku deildinni hefst um næstu helgi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert