Sara Björk og stöllur óstöðvandi

Sara Björk Gunnarsdóttir leikur með Wolfsburg í þýsku 1. deildinni …
Sara Björk Gunnarsdóttir leikur með Wolfsburg í þýsku 1. deildinni sem er ein sterkasta kvennadeild í heimi. Ljósmynd/Wolfsburg

Vel gengur hjá landsliðsfyrirliðanum Söru Björk Gunnarsdóttir og stöllum í Wolfsburg en þær unnu sinn sjötta deildarsigur í röð á tímabilinu í dag og eru áfram með fullt hús stiga á toppnum. Þetta var alls 15. sigurleikur liðsins í röð í deild.

Sara Björk var sem fyrr í byrjunarliði Wolfsburg og spilaði allan leikinn í 3:0-sigri á útivelli gegn Frankfurt. Wolfsburg er sem fyrr segir á toppnum með 21 stig og markatöluna 29:2 eftir sjö umferðir en liðið tapaði síðast deildarleik 17. febrúar á síðustu leiktíð gegn Bayern München.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert