Einir í toppsætinu eftir sigur

Sverrir Ingi Ingason og félagar eru komnir á toppinn.
Sverrir Ingi Ingason og félagar eru komnir á toppinn. AFP

PAOK hafði betur gegn Volos, 1:0, í grísku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Með sigrinum fór PAOK upp í toppsæti deildarinnar. 

Vierinha skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu á 60. mínútu. Sverrir Ingi Ingason er lykilmaður hjá PAOK og lék varnarmaðurinn allan leikinn.

PAOK er með 52 stig, einu stigi meira en Olympiacos, sem er í öðru sæti. Eru þau með yfirburði yfir önnur lið í deildinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert