FH án þriggja leikmanna í sumar

FH fagnar sæti í efstu deild í lok síðustu leiktíðar.
FH fagnar sæti í efstu deild í lok síðustu leiktíðar. Ljósmynd/Haraldur Jónasson/Hari

Kvennalið FH í fótbolta verður án þriggja leikmanna komandi sumar. FH leikur í efstu deild á næstu leiktíð eftir að liðið endaði í öðru sæti 1. deildarinnar á síðustu leiktíð. Fótbolti.net greindi frá.  

Aldís Kára Lúðvíksdóttir og Selma Dögg Björgvinsdóttir eru barnshafandi og verða því ekki með liðinu. Aldís skoraði þrjú mörk í sextán leikjum á síðustu leiktíð og Selma gerði fjögur mörk í sautján leikjum. 

Melkorka Katrín Fl Pétursdóttir verður heldur ekki með liðinu vegna meiðsla, en hún sleit krossband á dögunum í annað skipti á stuttum tíma Lék hún ekkert með FH á síðustu leiktíð vegna krossbandsslita. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert