Kjartani brást bogalistin

Kjartan Henry Finnbogason
Kjartan Henry Finnbogason

Kjartan Henry Finnbogason og félagar í toppliði Vejle gerðu óvænt 1:1-jafntefli gegn Næstved í dönsku 1. deildinni í knattspyrnu sem hófst aftur í dag eftir rúmlega tveggja mánaða hlé.

Ekkert hefur verið spilað undanfarið vegna kórónuveirunnar en deildin hóf göngu sína á ný í dag og tók topplið Vejle á móti Næstved sem situr í næstneðsta sæti en 26 stig skilja liðin að eftir 21 umferð. Gestirnir komust þó yfir strax á þriðju mínútu en heimamenn jöfnuðu sjö mínútum síðar.

Kjartan Henry er markahæsti leikmaður deildarinnar með 14 mörk og spilaði allan leikinn í dag en honum brást óvænt bogalistin og mistókst að skora úr nokkrum góðum færum samkvæmt leikskýrslu bold.dk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert