Íslendingarnir í Danmörku aftur á sigurbraut

Ólafur ræðir við danska fjölmiðla.
Ólafur ræðir við danska fjölmiðla. Ljósmynd/Esbjerg

Esbjerg er komið upp í annað sæti dönsku 1. deildarinnar í fótbolta eftir 2:1-sigur á Helsingør á heimavelli í dag. 

Andri Rúnar Bjarnason kom inn á sem varamaður á 63. mínútu hjá Esbjerg, en hann kom til félagsins frá Kaiserslautern fyrir tímabilið. Ólafur Kristjánsson er þjálfari Esbjerg. 

Er liðið með níu stig eftir fjóra leiki, eins og Helsingør sem tapaði sínum fyrstu stigum á tímabilinu með tapinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert