Íslenskt mark mánaðarins í Frakklandi

Berglind Björg Þorvaldsdóttir byrjar vel með Le Havre.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir byrjar vel með Le Havre. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsliðskonan Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði mark septembermánaðar í frönsku A-deildinni í fótbolta. Skoraði Berglind mark Le Havre í 1:1-jafntefli á útivelli gegn Paris FC í sínum öðrum leik með liðinu 26. september síðastliðinn. 

Berglind gekk á dögunum til liðs við Le Havre frá Breiðabliki, en Anna Björk Kristjánsdóttir fór sömu leið frá Selfossi. 

Fór kosning fram á Twitter-síðu Cœurs de Foot sem sérhæfir sig í umfjöllun um knattspyrnu í kvennaflokki. Berglind hafði mikla yfirburði í kosningunni og hlaut 75,4% atkvæða. 

Markið má sjá hér fyrir neðan en það er fjórða í röðinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert