Meiddist og missir af því að mæta Evrópumeisturunum

Diego Costa grípur um höfuðið í leik Atlético gegn Celta …
Diego Costa grípur um höfuðið í leik Atlético gegn Celta Vigo um helgina. AFP

Spænska knattspyrnufélagið Atlético Madrid hefur staðfest að meiðsli sem framherjinn reyndi Diego Costa varð fyrir í leik með liðinu gegn Celta Vigo í spænsku 1. deildinni um helgina þýði að hann verði frá keppni um sinn.

Þar með mun Costa ekki leika með Atlético þegar liðið sækir heim Evrópumeistara Bayern München í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar á miðvikudagskvöldið.

Ekki er tekið fram að öðru leyti á heimasíðu Atlético hversu lengi sóknarmaðurinn verði frá keppni en samkvæmt fréttum í spænskum fjölmiðlum gæti það verið í nokkurn tíma. Um er að ræða meiðsli í læri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert