Leikmaður Arsenal glímir við hjartavandamál

Pierre-Emerick Aubameyang hefur ekkert spilað í Afríkukeppninni.
Pierre-Emerick Aubameyang hefur ekkert spilað í Afríkukeppninni. AFP

Sóknarmaðurinn Pierre-Emerick Aubameyang hefur ekki getað leikið með Gabon á Afríkumótinu í fótbolta til þessa vegna heilsufarsvandamála.

Aubameyang missti af 1:0-sigrinum á Kó­morós í fyrsta leik Gabon á mótinu þar sem hann greindist með kórónuveiruna. Hann lék svo ekki við Gana í gær vegna lítilsháttar hjartavandamála vegna smitsins.

Patrice Neveu, landsliðsþjálfari Gabon, sagði á blaðamannafundi eftir leik að um lítilsháttar vandamál væri að ræða og Aubameyang gæti tekið þátt í næsta leik Gabon í keppninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert