Glæsileg afgreiðsla Skagamannsins (myndskeið)

Hákon Arnar, lengst til hægri, skoraði mikilvægt mark.
Hákon Arnar, lengst til hægri, skoraði mikilvægt mark. Ljósmynd/FC Köbenhavn

Hákon Arnar Haraldsson skoraði huggulegt mark fyrir FC Kaupmannahöfn er liðið vann 2:0-útisigur á Randers í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. 

Sigurinn fór langt með að tryggja FCK danska meistaratitilinn og mark Hákons mikilvægt, þar sem hann kom Kaupmannahafnarliðinu yfir.

Markið fallega má sjá hér fyrir neðan en Ísak Bergmann Jóhannesson var á meðal fyrstu manna til að fagna með sveitunga sínum.  


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert