Fabinho og Thiago, miðjumenn enska knattspyrnuliðsins Liverpool, flugu báðir með liðinu til Parísar þar sem það mætir Real Madríd á Stade de France-vellinum í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu annað kvöld.
Fabinho hefur misst af þremur síðustu leikjum Liverpool vegna meiðsla og Thiago fór meiddur af velli í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar síðastliðinn sunnudag.
Fabinho hefur undanfarna daga getað tekið fullan þátt í æfingum liðsins en Thiago hefur unnið meira einn með sjúkraþjálfara.
Báðir fara þeir þó með til Parísar og sagði Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, á blaðamannafundi á miðvikudag, að meiðsli Thiagos hefðu ekki verið jafn alvarleg og óttast var í fyrstu.
Því er möguleiki á að þeir geti báðir tekið þátt í úrslitaleiknum á morgun.