Natasha frá í nokkra mánuði

Natasha Anasi.
Natasha Anasi. Ljósmynd/Brann

Natasha Anasi, landsliðskona í knattspyrnu, varð fyrir því óláni að slíta hásin á æfingu með Noregsmeisturum Brann í liðinni viku.

Af þeim sökum þarf hún að gangast undir aðgerð og verður frá í nokkra mánuði.

Natasha gekk til liðs við Brann síðastliðið haust og hefur undanfarið tekið þátt í undirbúningi liðsins fyrir komandi tímabil.

Átti hún að spila sinn fyrsta æfingaleik gegn Åsane í dag en ekkert verður af því.

Mun Natasha að öllum líkindum missa af upphafi tímabilsins, en keppni í norsku úrvalsdeildinni hefst eftir tæplega tvo mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert