Með nýjan þjálfara eftir HM-vonbrigðin

Carlos Queiroz er nýr þjálfari katarska landsliðsins.
Carlos Queiroz er nýr þjálfari katarska landsliðsins. Ljósmynd/Knattspyrnusamband Katars

Portúgalinn Carlos Queiroz hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari karlaliðs Katars í fótbolta. Hann tekur við af Felix Sánchez, sem þjálfaði Katar á HM á heimavelli í desember.

Þar tapaði Katar öllum þremur leikjum sínum og var Spánverjinn látinn fara í kjölfarið. Queiroz þekkir það vel að þjálfa landslið í Asíu, því hann var áður landsliðsþjálfari Írans og Sameinuðu arabísku furstadæmanna.

Fyrsta mótið sem Katar leikur á undir stjórn Portúgalans er Asíumótið í júlí, en Katar er ríkjandi Asíumeistari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert