„Hann var knattspyrnumaður og hún bara 15 ára“

Adam Johnson hefur verið rekinn frá Sunderland en réttarhöld yfir …
Adam Johnson hefur verið rekinn frá Sunderland en réttarhöld yfir honum standa yfir. AFP

Stúlkan sem knattspyrnumaðurinn Adam Johnson misnotaði sagði vinkonu sinni að Johnson hefði boðið henni pening fyrir að hittast. Hann bað stúlkuna, sem var 15 ára, um að senda sér nektarmynd.

Adam John­son var í síðustu viku rek­inn frá enska úr­vals­deild­ar­fé­lag­inu Sund­erland auk þess sem íþróttafram­leiðand­inn Adi­das rifti samn­ingi sín­um við hann, en hann hef­ur játað tvö kyn­ferðis­brot gegn stúlku sem var und­ir lögaldri.

„Hún sagði mér að þau hefðu talað saman á Snapchat og hann bað um nektarmynd af henni. Einnig bárust skilaboð frá honum þar sem hann bauð henni pening,“ sagði vinkona fórnarlambsins við réttarhöld yfir Johnson sem standa yfir.

Johnson hef­ur játað að hafa gefið henni hluti til þess að öðlast traust auk þess sem hann viður­kenndi að hafa kysst stúlkuna en neit­ar tveim­ur öðrum þar sem hann á að hafa haft sam­ræði með stúlk­unni.

Besta vinkona stúlkunnar sagðist í fyrstu eiga erfitt með að trúa henni. „Ég trúði þessu hreinlega ekki. Síðar sýndi hún mér skilaboð frá honum þar sem hann sagðist vilja ná henni úr buxunum. Hann var frægur knattspyrnumaður og hún var bara 15 ára.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert