Arna og Hilmar íþróttafólk FH

Hilmar Örn Jónsson og Arna Stefanía Guðmundsdóttir.
Hilmar Örn Jónsson og Arna Stefanía Guðmundsdóttir. Ljósmynd/fh.is

Arna Stefanía Guðmundsdóttir og Hilmar Örn Jónsson voru valin íþróttafólk ársins 2017 hjá FH en valið var kunngert á gamlársdag.

Arna Stefanía hljóp 400 m grindahlaup á tímanum 56,37 sek. Hún hefur náð öðrum
besta árangri íslenskrar konu í þessari grein og gefur 1.130 stig samkvæmt alþjóðlegri stigatöflu. Hún náði þessum árangri á Evrópumeistaramóti 22 ára og yngri sem fór fram í Póllandi síðastliðið sumar. 

Arna Stefanía sigraði á Smáþjóðaleikunum í 400 m grindahlaupi, einnig sigraði hún á stærri mótum í Hollandi og Danmörku á árinu. Á Norðurlandameistaramótinu innanhúss
sem fram fór í Finnlandi varð Arna Stefanía Norðurlandameistari í 400 m hlaupi. Þá var hún í bikarliði FH sem vann kvennabikarinn utanhúss og varð bikarmeistari í 400 m hlaupi, 100 m grindahlaupi og 1.000 m boðhlaupi. Hún varð Íslandsmeistari utanhúss í 100 m grindahlaupi. Hún var á dögunum valin íþróttakona Hafnarfjarðarbæjar.

Hilmar Örn kastaði sleggjunni 72,38 m í Eugene í Bandaríkjunum, gefur þessi árangur 1.077 stig samkvæmt alþjóðlegri stigatöflu er það næstbesti árangur Íslendings í greininni frá upphafi en Hilmar Örn er yngsti Íslendingurinn sem hefur kastað sleggjunni yfir 70 metra. Er þessi árangur Íslandsmet í flokki 20-22 ára pilta.

Hilmar er á sínu öðru ári í háskóla í Bandaríkjunum og náði hann að komast á ACC Championships og sigra á því móti sem er einstakt fyrir nýliða í háskóla vestanhafs.

Hann keppti á mörgum mótum í sumar og var stöðugt að kasta frá 69 m til 72,38 m, hann náði lágmarki á sitt fyrsta stórmót, það er HM sem fór fram í London í sumar. Hilmar stóð sig frábærlega vel á þessu móti, kastaði hann sleggjunni 71,12 m. Þá varð Hilmar Örn í sjöunda sæti á Evrópumeistaramóti 22 ára og yngri, sem fór fram í Póllandi.

Hann var Íslandsmeistari í sleggjukasti karla og stigameistari með karlaliði FH á Meistaramóti Íslands. Hilmar Örn er annar stigahæsti karl í frjálsíþróttum á Íslandi árið 2017 og var valinn frjálsíþróttakarl Frjálsíþróttasambandsins 2017.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert