Hirscher jafnaði Tomba

Marcel Hirscher fagnar sigri sínum í dag.
Marcel Hirscher fagnar sigri sínum í dag. AFP

Austurríkismaðurinn Marcel Hirscher vann í dag sinn 50. sigur í heimsbikarnum á skíðum þegar hann fagnaði sigri í svigi í Zagreb í Króatíu.

Hirscher jafnaði þar með ítölsku goðsögnina Alberto Tomba sem 50 sinnum hrósaði sigri í heimsbikarnum. Þeir eru jafnir í 3.-4. sæti.

Svíinn Ingemar Stenmark er sá sigursælasti í heimsbikarnum en á árunum 1980-90 vann hann 84 sigra. Næstur á eftir honum kemur Austurríkismaðurinn Hermann Maier sem fagnaði 54. sigrum í heimsbikarkeppninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert