Girard með enn eitt gull Kanadamanna

Samuel Girard sá til þess að Kanada vann sín fimmtu …
Samuel Girard sá til þess að Kanada vann sín fimmtu gullverðlaun á leikunum. AFP

Kanadamaðurinn Samuel Girard tók gullið í 1000 metra skautahlaupi karla á Vetr­arólymp­íu­leik­un­um í Pyeongchang í dag en tíminn hans var ein mínúta og 24 sekúndur. Þetta eru fimmtu gullverðlaun Kanada á leikunum.

John-Henry Krueger frá Bandaríkjunum tók silfrið en heimamaðurinn Seo Yira varð að láta sér bronsverðlaunin duga þrátt fyrir að hafa verið talinn sigurstranglegastur á mótinu. 

Girard var hársbreidd frá því að komast á verðlaunapall fyrr í leikunum í 1.500 metra hlaupinu en þurfti að láta fjórða sætið nægja. Nú fór hann þó alla leið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert