Úthlutun úr Afrekssjóði FRÍ

Hilmar Jónsson og Aníta Hinriksdóttir frjálsíþróttafólk ársins 2017. Þau eru …
Hilmar Jónsson og Aníta Hinriksdóttir frjálsíþróttafólk ársins 2017. Þau eru bæði afreksfólk FRÍ. Ljósmynd/FRÍ

Stjórn Frjálsíþróttasambands Íslands samþykkti, þriðjudaginn 17.apríl 2018, tillögu Afrekssjóðs FRÍ að fyrri úthlutun ársins 2018. Meginhlutverk Afrekssjóðs FRÍ  er að búa afreksfólki og afreksefnum í frjálsíþróttum fjárhagslega og faglega umgjörð til að hámarka árangur sinn.

Styrkveitingar skulu hafa það að meginmarkmiði að styðja við afreksfólk og afreksefni vegna undirbúnings og verkefna, jafnt á fjárhagslegan hátt sem og með aðgengi að ráðgjöf og þjónustu sem snýr að umhverfi afreksíþrótta sem skilgreind eru í afreksstefnu og aðgerðaráætlun FRÍ.

Afrekssjóður FRÍ úthlutar nú 8,8 milljónum króna og er byggt á úthlutunum Afrekssjóðs ÍSÍ, en breytingar hafa orðið á umhverfi Afrekssjóðs með hliðsjón af Afreksstefnu ÍSÍ, sem samþykkt var á 73. Íþróttaþingi ÍSÍ í maí 2017. Meginhlutverk Afrekssjóðs ÍSÍ í uppbyggingu afreksíþrótta á Íslandi er að styðja sérsambönd fjárhagslega og þar með íslenskt afreksíþróttafólk við að ná árangri í alþjóðlegri keppni og ná því úthlutanir einnig til einstaklingsstyrkja.

Í stjórn Afrekssjóðs FRÍ eru Afreksstjóri FRÍ og stjórn FRÍ. Að auki er Fagteymi FRÍ hluti af umgjörð sambandsins í afreksmálum og ráðgefandi sé þess óskað.

Á árinu eru fjölmörg stórmót á dagskrá og stærsta mót fullorðinna er Evrópumeistaramótið í Berlín í byrjun ágúst. Afreksefni FRÍ verða svo á ferðinni á Evrópumeistaramóti U18 sem fram fer í Györ Ungverjalandi í byrjun júlí og svo er Heimsmeistaramót U20 viku seinna í Tampere Finnlandi.

Eftirtalið frjálsíþróttafólk hlaut að þessu sinni styrk úr Afrekssjóði FRÍ:

Afreksfólk FRÍ:

Aníta Hinriksdóttir, ÍR                              

Arna Stefanía Guðmundsdóttir, FH                

Ásdís Hjálmsdóttir, Ármanni                             

Guðni Valur Guðnason, ÍR                          

Hilmar Örn Jónsson, FH                                

Sindri Hrafn Guðmundsson, Breiðabliki

Afreksefni FRÍ:

Dagbjartur Daði Jónsson, ÍR                        

Erna Sóley Gunnarsdóttir, ÍR                       

Elísabet Rut Rúnarsdóttir, ÍR                       

Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, ÍR                    

Helga Margrét Haraldsdóttir, ÍR                  

Irma Gunnarsdóttir, Breiðabliki                               

Mímir Sigurðsson, FH                                 

Tiana Ósk Whitworth, ÍR                            

Thelma Lind Kristjánsdóttir, ÍR                  

Valdimar Erlendsson, FH                         

Vigdís Jónsdóttir, FH                                 

Þórdís Eva Steinsdóttir, FH                       

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert