Frábær árangur hjá landsliðinu í karate (myndskeið)

Verðlaunahafar Íslands á mótinu ásamt þjálfurum.
Verðlaunahafar Íslands á mótinu ásamt þjálfurum. Ljósmynd/Karatesamband Íslands

Íslenska landsliðið í karate átti frábæran dag í Worchester í gær er Central England Open var haldið í sjötta sinn. Yfir 500 keppendur mættu á mótið en margt landsliðsfólk er í ströngum undirbúningi fyrir heimsmeistaramótið í Madrid í næsta mánuði og því eru flest mót þétt setin.

Iveta Ivanova kom, sá og sigraði enn og aftur er hún tók gull í Junior flokki -59 kg í kumite. Hún vann alla sína fjóra bardaga örugglega.  Þetta er í annað sinn í röð sem Iveta tekur gull á mótinu en hún sigraði einnig fyrir tveimur árum.

Svana Katla Þorsteinsdóttir náði þriðja sæti í kata kvenna senior eftir æsispennandi keppni þar sem Svana tapaði einungis í undanúrslitum með naumasta mun.

Aron Huynh náði einnig þriðja sæti í kata karla senior eftir margar magnaðar viðureignir og er ljóst að Svana og Aron eru í góðum stað í undirbúningi sínum fyrir HM.

Nýliðinn Viktoría Ingólfsdóttir, sem valin var í unglingalandsliðið á dögunum, náði þriðja sæti í kumite í flokki 12 til 13 ára eftir að hafa sigrað þrjá bardaga í röð og einungis tapað í undanúrslitum Cory Fital, sem er einn sterkasti keppandi í Evrópu í aldursflokknum.

Samuel Josh Ramos landaði einnig þriðja sætinu eftir harða keppni í Cadet flokki í kumite -63 kg.  Samuel er nýkrýndur smáþjóðameistari og hefur bætt sig mikið á árinu.

Ólafur Engilbert Árnason átti sterka innkomu í -75 kg flokk kumite er hann náði þriðja sæti eftir fjóra bardaga, Ólafur er við æfingar í Danmörku og er í mjög góðu formi þessa dagana þar sem hann hefur einnig unnið sér sæti á HM.

Ólafur Engilbert, Máni Karl, Ágúst Heiðar og Iveta öttu kappi í kynjablandaðri liðakeppni (tveir karlar og ein kona) þar sem íslenska liðið vann  tvær viðureignir og keppti til úrslita við CEWKA frá Skotlandi en Skotarnir náðu með naumindum að tryggja gullið í mjög jafnri viðureign. Iveta keppti upp fyrir sig en hún fékk sérstakt leyfi hjá skipuleggjendum að keppa í senior-flokki, en Iveta er einungis 17 ára.

Ingólfur Snorrason, landsliðsþjálfari í kumite, og Pétur Freyr Ragnarsson aðstoðarþjálfari stjórnuðu landsliðinu. Næstu verkefni á árinu eru heimsmeistaramótið, Norðurlandamótið og Youth League í Feneyjum.

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá nokkur tilþrif Íslendinganna á mótinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert