Guðbjörg bætti eigið Íslandsmet

Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir bætti eigið Íslandsmet um tvo hundraðshluta úr …
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir bætti eigið Íslandsmet um tvo hundraðshluta úr sekúndu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir gerði sér lítið fyrir og bætti eigið Íslandsmet í 200 metra hlaupi á ungmennamóti MÍ í frjálsum íþróttum sem fram fer á Selfossi um helgina. Guðbjörg kom fyrst í mark í úrslitum í 200 metra hlaupi í flokki stúlkna, 20-22 ára, og hljóp á tímanum 23,45 sekúndum.

Fyrra met Guðbjargar í greininni var 23,47 sekúndur sem hún náði í Buenos Aires á Ólympíuleikum æskunnar og bætti hún þar með eigið Íslandsmet um tvo hundraðshluta úr sekúndu. Þetta er í fjórða sinn sem Guðbjörg bætir Íslandsmetið í 200 metra hlaupi en hún er aðeins 17 ára gömul.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert