Dagbjartur í úrslit á EM

Dagbjartur Daði Jónsson.
Dagbjartur Daði Jónsson. Ljósmynd/ÍSÍ

Tveir íslenskir keppendur voru á ferðinni á fyrsta degi Evrópumeistaramóts yngri en 23 ára í frjálsíþróttum í Svíþjóð í gær.

Dagbjartur Daði Jónsson tryggði sig örugglega inn í úrslitin í spjótkasti. Kasta þurfti 76 metra til þess að tryggja sig beint inn í úrslitin eða enda á meðal tólf efstu af tveimur undanriðlum. Dagbjartur kastaði 76,85 metra í sínu öðru kasti og átti hann þriðja lengsta kast dagsins af átján keppendum. Úrslitin í spjótkastinu fara fram á morgun.

Fyrri dagur sjöþrautarinnar fór fram í gær þar sem Irma Gunnarsdóttir er á meðal keppenda. Irma er með 2.880 stig eftir fjórar greinar og er í 23. sæti af þeim 23 keppendum sem eftir eru en 26 keppendur hófu keppni. Úrslit einstakra greina hjá Irmu:

100 metrar grindahlaup: 15,41s, -1,9m/s (887 stig)
Hástökk: 1,52m (644 stig)
Kúluvarp: 12,25m (678 stig)
200 metra hlaup : 26,30s, -0,7 (771 stig).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert