Fjórir Íslendingar á verðlaunapall

Birta Líf Þórarinsdóttir setti nýtt Íslandsmet.
Birta Líf Þórarinsdóttir setti nýtt Íslandsmet. Ljósmynd/Árni Rúnar Baldursson

Í gær lauk seinni keppnisdegi Norðurlandamótsins í ólympískum lyftingum. Mótið fór fram í húsnæði Lyftingafélags Reykjavíkur í Crossfit Reykjavík yfir helgina og var streymt í gegnum miðla norska landssambandsins en lyftur hvers keppanda voru teknar upp í hans heimalandi. Var þetta í fyrsta sinn sem Norðurlandamótið er haldið með þessu sniði en voru engir áhorfendur og einungis hafðir lágmarksstarfsmenn á mótinu. 

Alls kepptu níu Íslendingar á tveimur dögum, þar af fjórar konur og fimm karlar. Fjögur þeirra náðu á verðlaunapall. Birta Líf Þórarinsdóttir lenti í 2. sæti í -76 kg flokki með 203,4 Sinclair-stig. Sigurður Darri Rafnsson lenti í 2. sæti í -81 kg flokki með 311,5 Sinclair-stig, Árni Rúnar Baldursson lenti í 3. sæti í -81 kg flokki með 294 Sinclair-stig og Birkir Örn Jónsson lenti í 3. sæti í -89 kg flokki með 323,9 Sinclair-stig.

Þá féllu þrjú Íslandsmet á mótinu. Sigurður Darri Rafnsson gerði Íslandsmet í snörun í -81 kg flokki þegar hann lyfti 120 kg. Birta Líf Þórarinsdóttir lyfti 93 kg í jafnhendingu í -76 kg flokki og setti Íslandsmet og loks lyfti Alma Hrönn 98 kg í jafnhendingu og setti Íslandsmet í Masters 35 flokki. 

Úrslit mótsins eru að finna á úrslita- og metasíðu Lyftingasambandsins á results.lsi.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert