Í morgun var þriðji dagur Evrópumótsins í sundi og Snæfríður Sól Jórunnardóttir synti 200 metra skriðsund og komst inn í undanúrslit. Anton Sveinn McKee komst einnig í undanúrslit í 200 metra bringusundi.
Snæfríður Sól synti í morgun á tímanum 2.02,00 mín. og varð fyrsti varamaður inn í undanúrslit. Það kom fljótlega í ljós úrskráning svo Snæfríður mun keppa í 200 metra skriðsundi í kvöld.
Anton Sveinn var þriðji inn í undanúrslit þegar hann synti í morgun á tímanum 2.11,82 mín.
í 100m flugsund keppti Símon Elías Statkevicius en þetta er hans þriðji keppnisdagur í röð. Hann fór á tímanum 55,39 sek. en hans eldri tími var 55,90 sek. svo þetta var góð bæting hjá honum.
Fréttin hefur verið uppfærð.