Valdís enn í mikilli toppbaráttu

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. Ljósmynd/LET/Tristan Jones

Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Leyni, heldur áfram góðri spilamennsku sinni á VP Bank Ladies Open-golfmótinu í LET-Access-mótaröðinni, þeirri næststerkustu í Evrópu. Valdís er hálfnuð með þriðja hringinn.

Valdís er á einu höggi undir pari vallarins á þriðja hring þegar hún er hálfnuð. Hún fékk tvo skolla á fyrstu þremur holunum, en fékk þrjá fugla og er á einu undir pari. Hún er í 5.-6. sætinu á samtals þremur höggum undir pari, tveimur höggum frá efsta kylfingi.

Valdís Þóra flaug í gegnum niðurskurðinn í gær, en skorið var niður við þrjú högg yfir pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert