Stjörnurnar byrjuðu með látum

Tiger Woods
Tiger Woods AFP

Stjörnuráshópurinn er farinn af stað á Opna Genesis mótinu á PGA-mótaröðinni í golfí Kaliforníu. Tiger Woods, Rory McIlroy og Justin Thomas eru saman í ráshópi og byrjuðu með látum. 

Allir fengu þeir fugl á fyrstu holunni og ekki minnka væntingarnar til þeirra við það en þeir eru nýfarnir af stað á fyrsta keppnisdegi.

Woods er næstsigursælasti kylfingur sögunnar, McIlroy var um tíma í efsta sæti heimslistans og Thomas sigraði á mótaröðinni á síðasta ári. 

Woods hefur verið mikið frá síðustu árin vegna bakmeiðsla en honum gekk vel þegar hann lék á móti í byrjun desember. Hann var einnig með á PGA-mótaröðinni á Torrey Pines fyrir þremur vikum og lék þá á samtals þremur undir pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert