Tiger komst ekki í gegnum niðurskurð

Tiger Woods.
Tiger Woods. AFP

Tiger Woods komst ekki í gegnum niðurskurðinn á opna Genesis mótinu sem leikið er á Riviera vellinum í Kaliforníu.

Tiger spilaði fyrsta hringinn ágætlega, og var einu höggi yfir pari. Á öðrum hring fór hins vegar frammistaða hans í súginn er hann endaði í 76 höggum, fimm yfir pari, og endaði hann í 116. sæti. Tiger var með átta skolla og var fjórum höggum frá því að ná inn.

Tveir hringir eru enn óleiknir en Bandaríkjamaðurinn Patrick Cantlay er efstur, samtals sjö höggum undir pari. Sigurvegarinn frá því í fyrra, Dustin Johnson, er í 52. sæti, samtals einu höggi yfir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert