Birgir og Axel báðir með í Kenía

Axel Bóasson.
Axel Bóasson. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Atvinnukylfingarnir Birgir Leifur Hafþórsson, úr GKG, og Axel Bóasson úr GK, hefja tímabilið á Áskorendamótaröðinni á Barclays mótinu sem fram fer í Kenía í Afríku. Þetta kemur fram á golf.is.

Axel, sem er Íslandmeistari í golfi 2017, komst inn á mótið í dag en hann var fyrsti maður á biðlista í upphafi þessarar viku.

Mótið er hluti af Áskorendamótaröðinni, næst sterkustu mótaröð Evrópu. Birgir Leifur sigraði á einu móti í fyrra á þessari mótaröð og var það jafnframt fyrsti sigur hjá íslenskum kylfingi á mótaröð í næst efsta styrkleikaflokki atvinnukylfinga. Mótið fer fram á Muthaiga vellinum dagana 22. – 25. mars.

Axel er með keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni eftir frábæran árangur á Nordic Tour atvinnumótaröðinni á síðasta ári. Hann fær takmarkaðan fjölda móta á þessu tímabili á meðan Birgir Leifur er með keppnisrétt á öllum mótum tímabilsins. Axel varð stigameistari á Nordic Tour og tryggði sér keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni 2018.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert