Ólafía fylgist með einvígi Woods og Mickelson

Phil Mickelson og Tiger Woods.
Phil Mickelson og Tiger Woods. AFP

Einstakur golfviðburður fer fram í dag þegar bandarísku kylfingarnir Tiger Woods og Phil Mickelson mætast í einvígi í Las Vegas. Þar keppa stórstjörnurnar í holukeppni og fær sigurvegarinn rúmlega 1,1 milljarð ísl. kr. í sinn hlut.

Rétt um 100 manns fá tækifæri að fylgjast með mótinu á keppnisvellinum í Las Vegas. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir atvinnukylfingur verður í þeim hópi að því er fram kemur á golf.is.

Ólafía Þórunn fékk boð að vera viðstödd í gegnum vinkonu sína Cheyenne Woods, sem er einnig atvinnukylfingur.

Cheyenne og Ólafía voru saman í háskólaliði Wake Forest á sínum tíma og eru því góðar vinkonur. Cheyenne er náfrænka Tiger Woods en faðir hennar og Tiger Woods eru bræður.

Cheyenne fékk miða frá frænda sínum á viðburðinn og bauð hún Ólafíu að taka þátt í ævintýrinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert