Tiger úr leik á The Open

Tiger Woods lék á einu höggi undir pari í dag …
Tiger Woods lék á einu höggi undir pari í dag en það dugði ekki til. AFP

Bandaríkjamaðurinn Tiger Woods fer ekki í gegnum niðurskurðinn á The Open sem nú fer fram á Royal Portrush-vellinum á Norður-Írlandi. Tiger lék á 78 höggum í gær og var á samtals sjö höggum yfir pari.

Hann byrjaði ágætlega í dag og fékk tvo fugla en skolli á sjöundu braut gerði honum erfitt fyrir. Tiger lauk keppni á 70 höggum eða einu höggi undir pari og var því samtals á sex höggum yfir pari.

Niðurskurðarlínan miðast við eitt högg yfir pari eins og sakir standa og Tiger kveður því The Open í ár í 132.-135. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert