Valdís á meðal 20 efstu

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir.

Valdís Þóra Jónsdóttir lék ágætlega á þriðja hring á opna Lacoste Ladies Open-mót­inu í golfi í Frakklandi en mótið er hluti af LET-Evr­ópu­mótaröðinni, þeirri sterk­ustu hjá at­vinnukylf­ing­um í Evr­ópu í kvenna­flokki.

Valdís lék á 70 höggum, einu höggi undir pari, og er á samanlagt tveimur höggum yfir pari eftir þrjá hringi. Valdís lék illa á fyrsta hring eða á 79 höggum en hún bætti upp fyrir það með stórgóðum hring í gær er hún lék á 66 höggum. 

Hún fékk fjóra fugla í dag, einn skolla og einn tvöfaldan skolla. Valdís er í 19. sæti ásamt Madelene Sagström frá Svíþjóð. Nelly Korda frá Bandaríkjunum er í toppsætinu á ellefu höggum undir pari. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert