Íslandsmeistarinn naumlega áfram

Guðrún Brá Björgvinsdóttir fór naumlega í gegnum niðurskurðinn.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir fór naumlega í gegnum niðurskurðinn. mbl.is/Kristinn Magnússon

Íslandsmeistarinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir fór naumlega í gegnum niðurskurðinn á Gant Ladies Open-mótinu í Finnlandi í dag. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi.

Guðrún hefur ekki átt sína bestu hringi á mótinu því hún er á níu höggum yfir pari eftir tvo hringi. Skorið er hinsvegar lágt á mótinu því aðeins tveir kylfingar léku á undir pari á fyrstu tveimur hringjunum.

Guðrún lék fyrri hringinn í gær á 77 höggum en bætti sig um þrjú högg og fór í gegnum niðurskurðinn. Ekki mátti það tæpara standa því hún var einu höggi frá því að falla úr leik. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert