Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari Barein, og Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Japan í handknattleik, munu mætast í milliriðlum Asíumótsins í handknattleik eftir úrslit dagsins.
Guðmundur og lærisveinar hans í karlalandsliði Barein unnu sinn riðil í morgun með því að leggja Óman að velli, 30:23.
Eftir stóran sigur á Úsbekistan í fyrstu umferð biðu lærisveinar Dags Sigurðssonar í Japan lægri hlut gegn Íran, 37:32. Japanar eru þrátt fyrir ósigurinn komnir áfram en þeir lenda í 2. sæti A-riðils.
Þessi úrslit þýða að Dagur og Guðmundur munu enn á ný mætast með sínum liðum þar sem Japan og Barein verða saman í milliriðli ásamt Sameinuðu arabísku furstadæmunum og liðinu sem lendir í fyrsta sæti í D-riðli. Sádi-Arabía og Katar leika úrslitaleik í dag um 1. sætið.
Það verður í sjötta skiptið sem Dagur og Guðmundur etja kappi sem landsliðsþjálfarar en þeir mættust einnig á dögunum í vináttulandsleik þar sem Barein vann eins marks sigur og einnig með sömu liðum um jólin. Þá vann Barein stórsigur. Áður höfðu þeir mæst er Guðmundur stýrði liði Íslands gegn Austurríki. Þá mættust þeir einnig er Dagur þjálfaði Þýskaland og Guðmundur Danmörku.