Arnar skoraði í þægilegum sigri

Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði eitt mark fyrir SönderjyskE í kvöld.
Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði eitt mark fyrir SönderjyskE í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Arnar Birkir Hálfdánarson skoraði eitt mark þegar lið hans SönderjyskE vann fjögurra marka sigur á Ringsted í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag en leiknum lauk með 29:25-sigri heimamanna í SönderjyskE. 

Arnar átti fjórar skot tilraunir í leiknum en aðeins ein af þeim fór í netið. SönderjyskE er í fimmta sæti deildarinnar með 6 stig, tveimur stigum minna en topplið Ålaborgar.

Ólafur Gústafsson komst ekki á blað yfir markaskorara hjá Kolding þegar liðið tók á móti Skanderborg í úrvalsdeildinni í Danmörku. Ólafur gaf eina stoðsendingu í leiknum sem lauk með 26:26-jafntefli. Kolding er í áttunda sæti deildarinnar með 4 stig eftir fyrstu fimm leiki sína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert