Oddur öflugur í sigri

Oddur Gretarsson var öflugur í liði Balingen í dag og …
Oddur Gretarsson var öflugur í liði Balingen í dag og skoraði fimm mörk. mbl.is/Árni Sæberg

Oddur Gretarsson var atkvæðamikill í liði Balingen þegar liðið vann þriggja marka útisigur gegn Nordhorn í þýsku B-deildinni í handknattleik í dag en leiknum lauk með 29:26-sigri Balingen. Oddur skoraði fimm mörk í leiknum, þar af þrjú úr vítaköstum. 

Það virtist allt stefna í stórsigur Balingen í hálfleik en Balingen hafði þá átta marka forystu, 14:6, en leikmenn Nordhorn komu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og tókst að minnka muninn niður í þrjú mörk. 

Lengra komust leikmenn Nordhorn hins vegar ekki og Balinger er komið í sjötta sæti deildarinnar með 7 stig eftir fyrstu sex umferðirnar. Fimm stigum minna en topplið Essen sem hefur leikið sjö leiki í deildinni en Balingen hefur aðeins spilað sex leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert