Guðjón Valur reyndist Aðalsteini erfiður

Guðjón Valur Sigurðsson er að spila vel.
Guðjón Valur Sigurðsson er að spila vel.

Rhein-Neckar Löwen vann 29:26-sigur á Erlangen í þýsku 1. deildinni í handbolta í dag í Íslendingaslag. Guðjón Valur Sigurðsson var í stuði hjá Löwen og skoraði átta mörk og Alexander Petersson bætti við þremur mörkum, en Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Erlangen.

Kiel vann 28:26-heimasigur á Göppingen. Gísli Þorgeir Kristjánsson komst ekki á blað hjá Kiel. Alfreð Gíslason þjálfar Kiel. Arnór Þór Gunnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Bergischer í 30:28-sigri á Gummersbach á heimavelli.  

Kiel er í þriðja sæti deildarinnar með 22 stig, Löwen sæti neðar með 19 stig og nýliðar Bergischer í fimmta sæti með 16 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert