Handknattleiksþjálfarinn Árni Stefán Guðjónsson hefur skrifað undir samning við Hauka um að taka við þjálfun kvennaliðs félagsins í sumar og stýra því næstu tvö ár.
Segja má að Árni Stefán komi til Hauka frá erkifjendum félagsins í Hafnarfirði en hann er mikill FH-ingur aftur í ættir og var síðast aðstoðarþjálfari karlaliðs FH á árunum 2014-2018.
Árni Stefán tekur við þjálfun Hauka af Elíasi Má Halldórssyni sem lætur af störfum í sumar og tekur við karlaliði HK. Hann er 32 ára gamall en hefur starfað við þjálfun hjá FH frá árinu 2004.