Óvænt vistaskipti í Þýskalandi

Viggó Kristjánsson í leik með Leipzig.
Viggó Kristjánsson í leik með Leipzig.

Viggó Kristjánsson, landsliðsmaður í handknattleik, hafði í dag félagaskipti í Þýskalandi þegar Wetzlar fékk hann í sínar raðir frá Leipzig. Bæði félög leika í 1. deildinni, þeirri efstu, en Wetzlar er í 11. sæti og Leipzig í 8. sæti.

Viggó kom til Leipzig frá West Wien í Austurríki fyrir þetta tímabil. Wetzlar vantaði nauðsynlega örvhenta skyttu og á heimasíðu félagsins er forráðamönnum Leipzig þakkað innilega fyrir skjót viðbrögð. Viggó gerði samning við Wetzlar sem gildir út þetta keppnistímabil.

Hann hefur leikið fjóra A-landsleiki og tvo þeirra gegn Svíum í lok síðasta mánaðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert