Íslandsmeistararnir í Selfoss flugu auðveldlega áfram í átta liða úrslitin í Coca-Cola-bikarkeppni karla í handknattleik í kvöld.
Selfyssingar sóttu Þórsara heim í Höllina á Akureyri og unnu þar með 13 marka sigur 39:26 en Þór er í toppsæti Grill 66-deildarinnar.
Brynjar Hólm Grétarsson skoraði 8 mörk fyrir Þór og Heimir Pálsson 7 en hjá Selfyssingum var Hergeir Grímsson markahæstur með 10 mörk og Ísak Gústafsson skoraði 6.
16-liða úrslitunum lýkur annað kvöld en þá mætast:
19.00 ÍR - Mílan
19.30 Stjarnan - HK
19.30 Haukar - Valur
19.30 Grótta - FH