Guðmundur tekur við af Kára

Fjölnismaðurinn Breki Dagsson, til hægri, í leik gegn Stjörnunni.
Fjölnismaðurinn Breki Dagsson, til hægri, í leik gegn Stjörnunni. mbl.is/Árni Sæberg

Guðmundur Rúnar Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Fjölnis í handknattleik til næstu tveggja ára en hann tekur við starfinu af Kára Garðarssyni. Frá þessu er greint á heimasíðu Fjölnis.

Guðmundur hefur undanfarin tvö ár verið aðstoðarþjálfari liðsins en hefur í mörg ár starfað hjá Fjölni sem þjálfari yngri flokka og sem styrktarþjálfari. Þetta verður frumraun Guðmundar sem aðalþjálfari í meistaraflokki.

Fjölnismenn eru fallnir úr úrvalsdeildinni eftir eins árs dvöl þó tveimur umferðum sé ólokið og leika því í 1. deild á næsta tímabili. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert