Landsliðsmaður færir sig um set í Þýskalandi

Viggó Kristjánsson
Viggó Kristjánsson Ljósmynd/handball-westwien.at

Viggó Kristjáns­son, landsliðsmaður í hand­knatt­leik, er orðinn leikmaður Stuttgart í Þýskalandi en félagið staðfesti þetta á samfélagsmiðlum sínum í dag. Orðrómar um skipti Viggós til Stuttgart voru á kreiki í vetur og hafa nú verið staðfestir.

Viggó hafði vistaskipti frá Leipzig til Wetzlar í byrjun tímabilsins og spilaði þar í vetur eða þangað til að tímabilinu var aflýst í apríl vegna kórónuveirunnar.

Með Stutt­g­art leik­ur Elv­ar Ásgeirs­son en liðið lauk keppni í 12. sæti efstu deildarinnar á síðustu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert